Nú er nýtt ár gengið í garð og við horfum til baka og erum þakklát fyrir alla okkar gesti og það sem hefur á daga okkar drifið sl. ár.
Það komu um 6000 gestir til okkar sl. ár, langflestir á hestasýningar en einnig hópar tengdir fyrirtækjum sem við eigum í samstarf við. Við tökum á móti hópum sem vilja annaðhvort koma í mat, kaffi og kökur og/eða að heimsækja galleríið eða koma hér á viðburði sem við höldum. Við bjóðum upp á lambakjötið okkar og eins mikið beint frá býli og við getum. Yfir sumarmánuðina þá notum við salatið og allt sem við ræktum í garðinum hjá okkur og gróðurhúsunum. Við buðum ekki upp á jólaveislu eins og sl. ár þar sem við vorum stödd erlendis í lok nóvember og byrjun desember en höfðum eitt slíkt kvöld fyrir fyrirtæki hér innan sveitar.
Sumarið 2026 lofar góðu og hofum við bjarsýn fram á veginn. Einar sér fram á starfslok eftir rúmt ár og ætlar þá að einbeita sér að hestunum og myndlistinni ef guð lofar.
Þökkum enn og aftur fyrir okkur, alla sem heimsækja okkur. Ef fólk og fyrirtæki vilja fara í samstarf við okkur þá er alltaf hægt að hafa samband í gegum brunirhorse@brunirhorse.is. Ef hópar eru á ferð í okkar nágrenni þá um að gera að hafa samband og við getum útbúið móttöku fyrir ykkur.
Lifið heil 🙂


Einar Gíslason og Hugrún Hjörleifsdóttir á Brúnum í Eyjafjarðarsveit – Myndlistarsalur – vinnustofa – gestaíbúð – kaffihús – hestasýningar
Leave A Comment