Aðalsteinn Vestmann listmálari mun opna myndlistarsýningu í Listaskálanum á Brúnum (Brunirhorse) laugardaginn 12. október kl.14.
Aðalsteinn Vestmann er fæddur 12. ágúst 1932. Hann lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og var einnig um tíma í Finnlandi að kynna sér myndlist.
Aðalsteinn er Akureyringum kunnur og starfaði sem myndmenntakennari við Barnaskóla Akureyrar áratugum saman en jafnframt sinnti hann alltaf myndlistinni. Hann hefur beitt penslinum ýmist í olíu, akrýl eða vatnslitum.
Aðalsteinn hlaut viðurkenningu fra Menningarsjóði Akureyrar árið 2002.
Hann hefur haldið fjölda einkasýninga auk þess að taka þátt í samsýningum.

Verk Aðalsteins eru afar margslungin og vekja upp spurningar um lífið, náttúruna og persónuþætti.
Á sýningunni má sjá verk sem unnin hafa verið m.a á þessu ári í bland við eldri verk.
Við erum afar stolt og ánægð að sýna myndirnar hans hér en hann kenndi á sínum tíma Einari myndmennt og vakti hjá honum áhuga á listsköpun.